Og ég sem hélt hún væri almennilega týnd, en þá var hún bara undir stöflum af drasli í skenkskúffunni. Dæmigert. khbniuy hukfub ngy vugyvjmu ygunm cjvgkhybvchkuo8o, segir Gunnar.
Hér er allt með friði og spekt, drengir fyrir framan barnaefnið og Inga með pabba sínum í húsunum. Niðri í bragga lúrir ein þrílemba, sú fyrsta sem ber eftir að lambadrottningin kom í heiminn. Ég fór með strákana niðrí bragga í gær til að hitta lömbin og kannski gera eitthvert gagn með Einari, sem var að sprauta ærnar. Þeir sátu þrír strákarnir í garðanum með eitt lamb í einu og léku sér við það. Ætli litla loðna fjölskyldan sé ekki enn að jafna sig eftir eltinga-, bófa-, ofurhetju- osfr.leikina sem lömbin lentu í.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Mikid er eg fegin, myndavelin komin i leitirnar.... var farin ad sakna þess ad sjá engar myndir...
Skrifa ummæli